Ég hleyp fyrir fallega engilinn minn og allar hetjurnar í Landsbjörgu.
Í ár ætlar Minningarsjóður Jennýjar Lilju að safna áheitum sem renna í nýstofnaðan sjóð sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg sér um að annast. Tilgangur sjóðsins er að meðlimir björgunarsveita á öllu landinu, geti sótt sér aðstoð fagfólks eða sálgæslu eftir erfið útköll eða upplifanir í útköllum.
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.