Ég hleyp fyrir Neistann styrktarfélag Hjartveikra Barna 6. árið í röð.
Ég á 5 (alveg að verða 6) ára hjartastrák sem fæddist með nokkur göt í hjartanu og fór þegar hann var þriggja mánaða gamall fór hann í opna hjartaaðgerð úti í Boston.
Alls var hann fyrstu 22 mánuði lífs síns á spítala í 3 löndum. Bæði vegna hjartagalla og annara vandamála.
Í gegnum allan þennan tíma og síðan hefur Neistinn með sitt öfluga starf verið okkur innan handar. Sama hvort um er að ræða ráðgjöf, spjall eða félagsstarfs.
Neistinn heldur þónokkra viðburði á hverju ári fyrir hjartabörnin og aðstandendur þeirra. Það er frábært að hafa þennan félagskap, bæði fyrir okkur foreldrana að kynnast öðrum foreldrum sem hafa gengið í gegnum það sama og fyrir börnin að kynnast öðrum hjartakrökkum.
Mig langar að gefa til baka.
ÁFRAM NEISTINN!
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.