Að sjálfsögðu ætla ég að hlaupa til góðs 21 km í RM - í minningu Elínar systur minnar og mömmu.
Elín kom oft í Ljósið og ég upplifði í gegnum hana hversu frábært starf er unnið þar. Mín ósk og von er að Ljósið haldi áfram að vaxa og dafna.
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.