Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð þar sem fagfólk aðstoðar fólk með krabbamein við að byggja sig upp bæði andlega og líkamlega. Málið er mér sérstaklega skylt þar sem faðir minn er í krabbameinsmeðferð og hefur notið góðs af þessari þjónustu. Fyrir það er ég mjög þakklát.
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.