Halló vinir! Ég er að fara að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu núna 24. ágúst. Ég hleyp ásamt hópnum Vinir Fanneyjar fyrir styrktarfélagið Gleym-mér-ei. Gleym-mér-ei er félag sem er til staðar fyrir þá sem verða fyrir missi á meðgöngu eða stuttu eftir fæðingu þar sem lítil ljós eru varðveitt og lifa áfram í minningu.
Ég hleyp til minningar um litlu Fanneyju Karlsdóttur sem fæddist í byrjun þessa árs og kvaddi þennan heim alltof snemma. Gleym-mér-ei reyndist vinum mínum ómetanleg hjálp og gerði þeim kleift að eiga fallegan tíma með Fanneyju sem og að varðveita dýrmætar minningar.
Vona að þú sjáið þér fært að heita á okkur og styrkja þetta mikilvæga félag, Gleym-mér-ei. <3
Meira um félagið hér: https://www.gleymmerei-styrktarfelag.is/
Vinir Fanneyjar: https://www.hlaupastyrkur.is/hlaupahopar/lid?cid=70745
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.