Í ár ætla ég aftur að hlaupa fyrir Píeta samtökin. Þjónustan sem þau bjóða upp á er mjög mikilvæg í okkar samfélagi þá bæði fyrir einstaklinga sem er í sjálfsvígshættu eða með sjálfskaðahegðun en líka fyrir aðstandendur þeirra. Þetta er málefni sem snertir okkur öll á einhvern hátt.
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.