Stuðningur við fjölskyldu barns sem greinist með sjaldgæfan sjúkdóm eða heilkenni skiptir öllu máli í þessari vegferð sem þau eru á. Fræðsla til allra sem koma að barninu, þjálfun í meðferð barnsins og þekking á sjúkdómnum/heilkenninu tekur tíma og er afar kostnaðarsamt. Þess vegna ætla ég að hlaupa til að styrkja Einstök börn.
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.