Ég hleyp fyrir Jenný Lilju, elsku fallegu stelpuna mína. Við fjölskyldan stofnuðum minningarsjóð í hennar nafni. Minningarsjóður Jennýjar Lilju ætlar að safna fyrir lyfjadælum í þyrlur Landhelgisgæslunnar, en það er búnaður sem er mikilvægur þegar þyrlurnar þurfa að flytja slösuð eða veik börn.
Hjálpið okkur að hjálpa þeim með því að leggja áheit á mig og Jenný Lilju
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.