
Hlaupið fer fram þann 23. ágúst, 2025. Athugið að dagskráin gæti breyst þegar nær dregur.
Ræst verður á eftirfarandi tímum:
8:30 - Keppnisflokkur í maraþoni og hálfmaraþoni
8:40 - Almennur flokkur í maraþoni og hálfmaraþoni - Skemmtiganga í 10 km
9:30 - Keppnisflokkur í 10 km
9:40 - Almennur flokkur í 10 km
12:00 - Skemmtiskokk
Tímataka stoppar 6 klukkutímum og 30 mínútum eftir að fyrsta grein hefst. Hlauparar sem koma á marksvæðið eftir klukkan 15:00 fá því ekki skráðan tíma.
Mikilvægt er að þátttakendur kynni sér vel í hvaða ráshópi þau eru og hefji hlaup á réttum tíma. Þau sem taka af stað með röngum hóp verða dæmd ógild og fá ekki tíma skráðan.
*Með fyrirvara um breytingar - Uppfært 23.7.2025