Góðgerðafélög sem vilja taka þátt í áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka geta skráð sig til þátttöku með því að senda póst á aheit@marathon.is. Félögin fá þá sendan um hæl samning sem þarf að fylla út og undirrita. Skráningu nýrra félaga lýkur miðvikudaginn 17.ágúst kl.16:00.
Um 5-10% af söfnuðu fé í áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka fer í kostnað við rekstur vefsins hlaupastyrkur.is, greiðslu færslugjalda o.fl. Þess ber þó að geta að bæði korta- og símafyrirtæki slá verulega af sínum gjöldum til að sem mest af söfnuðu fé geti runnið til góðgerðamála. Árið 2010 var kostnaður 5,9% en hann getur verið breytilegur milli ára.
Fyrirspurnir vegna áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons skulu sendar á tölvupóstfangið aheit@marathon.is.