Hver er starfsemi FÉLAGSINS? Félagið FSMA á Íslandi var formlega stofnað 18. ágúst 2002 og er félag aðstandenda og einstaklinga sem haldnir eru SMA sjúkdómnum, Spinal Muscular Atrophy, á Íslandi. Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna þeirra einstaklinga sem haldnir eru SMA sjúkdómnum og aðstandenda þeirra. Tilgangur félagsins er einnig að stuðla að því að lækning finnist sem fyrst við sjúkdómnum og miðlun upplýsinga honum tengdum, jafnt til þeirra sem tengjast sjúkdómnum beint sem og til almennings.
Heimasíða félagsins:
www.fsma.ci.is