UNICEF, eða Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er áhrifamesti málsvari barna í heiminum. Samtökin hafa verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í yfir 60 ár; þau standa vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára og sinna bæði langtímaþróunaraðstoð og neyðaraðstoð. Leiðarljós UNICEF er sú bjargfasta trú að öll heimsins börn eigi rétt á heilsu, menntun, jafnrétti og vernd. Sjá nánar á heimasíðunni:
www.unicef.is.