Tilgangur samtakanna er að stuðla að auknum lífsgæðum til handa fólki með Parkinsonsjúkdóm, fólki með parkinsonskylda sjúkdóma og fjölskyldum þeirra með því m.a. að:
• Standa vörð um réttindi þeirra og hagsmuni.
• Með fræðslu og útgáfustarfsemi um málefni félagsmanna og fjölskyldna þeirra.
• Stuðla að rannsóknum og aukinni þekkingu á sjúkdómnum og möguleikum á meðferð við honum.
• Vera vettvangur fyrir parkinsonsjúka, fólk með parkinsonskylda sjúkdóma og aðstandendur til gagnkvæms stuðnings.
Félagar geta verið fólk með parkinsonsjúkdóm eða fólk með parkinsonskylda sjúkdóma og aðstandendur þeirra og aðrir sem áhuga hafa á málefnum samtakanna, óháð búsetu. Heimasíða félagsins er
psi.is.