Hjartavernd er sjálfseignarstofnun sem er rekin án hagnaðarvonar. Markmið Hjartaverndar hefur alla tíð verið skýrt og ekkert breyst á þeim rúmum fjörtíu árum sem liðin eru frá stofnun félagsins, en það er að finna helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma og efla forvarnir á því sviði. Rannsóknarstöð Hjartaverndar hóf starfsemi sína árið 1967 með mjög viðtækri faraldsfræðilegri rannsókn, Hóprannsókn Hjartaverndar þar sem áhersla var lögð á að finna helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma meðal Íslendinga. Hjarta- og æðasjúkdómar voru þá og eru enn algengasta dánarorsök karla og kvenna á Íslandi. Hjartavernd hefur frá upphafi lagt áherslu á að koma niðurstöðum rannsókna sinna til almennings og heilbrigðisstarfsfólks og hefur meðal annars staðið fyrir öflugu fræðslustarfi með útgáfu fræðslubæklinga um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma sem allir eru ókeypis. Eins má nefna Handbók Hjartaverndar sem má finna á heimasíðu félagsins en í henni eru kynntar helstu niðurstöður úr hóprannsóknum Hjartaverndar. Heimasíða félagsins er
hjarta.is.