Hlaupahópur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Hleypur fyrir Einstök börn Stuðningsfélag
Samtals Safnað
Markmið
Nokkrir vaskir samfélagslögreglumenn ætla að hlaupa heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, þá munu aðrir hlaupa hálfmaraþon og 10 km. Vegalengdina ætla þeir að fara í fullum útkallsfatnaði. Það er í lögreglufatnaði, í vesti og með tækjabelti.
Í ár ætlum við að hlaupa fyrir Einstök börn, en það er stuðningsfélag fyrir börn með sjaldgæfa sjúkdóma og sjaldgæf heilkenni.
Einstök börn Stuðningsfélag
Einstök börn er stuðningsfélag barna með sjaldgæfa, alvarlega sjúkdóma. Félagið var stofnað þann 13. mars 1997 af foreldrum 13 barna, sem áttu ekki heima í neinum öðrum starfandi félagasamtökum. Í dag eru um hátt í 700 fjölskyldur í félaginu, og sumar fjölskyldur eru með fleiri en eitt langveikt barn. Það eru yfir 500 ólíkir sjúkdómar á skrá í félaginu, sem eiga það sameiginlegt að vera langvinnir og hafa varanleg áhrif á lífslíkur barnanna, og lífsgæði barnanna og fjölskyldna þeirra. Í erfiðustu tilfellunum er það vitað með vissu að börnin munu ekki lifa fram á fullorðinsár. Rekstur félagsins er þungur þar sem fjölgun hefur verið mikil, þörf á þjónustu og úrræðum stór aukist og mikil orka fer í að aðstoða foreldra við að leita að aðstoð og finna úrræði sem henta börnum þeirra þar sem kerfið er flókið.
Hlauparar í hópnum
Nýir styrkir
Stöðuþráður hlaupahóps
Engir styrkir hafa borist enn